Það er alltaf þægilegt og hlýtt að ganga um á viðargólfi. Heildarupplifun hvað varðar bæði viðkomu og útlit byggir þó á
yfirborðsmeðhöndluninni.

Yfirborðið er það sem augu þín sjá og fætur þínir finna. Treystu skynfærum þínum. Öll viðargólfefnin okkar eru þægileg og hlý undir fæti en útlit þeirra og viðkoma mun á endanum fara eftir fráganginum og yfirborðsmeðhöndluninni sem þú velur. Það sem þú tekur fram yfir annað hvað varðar útlit, viðkomu og notagildi mun hjálpa þér að velja rétta valkostinn.

Yfirborðið er sjónrænt séð mikilvægasti hluti gólfsins. Þess vegna er öll Kährs yfirborðsmeðhöndlun nógu sterk til að þola jafnvel hið ágengasta daglega slit en á sama tíma nógu þunn til að það komi ekki niður á gljáa viðsins.

Kährs býður upp á ýmiss konar yfirborðsmeðhöndlun. Lakkað yfirborð gerir þrif auðveldari. Olía dregur fram fíngerða formgerð og æðamynstur viðarins og styrkir náttúrulegan lit hans.

Sérhver Kährs-yfirborðsmeðhöndlun er án leysiefna. Árið 1984 urðum við fyrsti gólfefnaframleiðandinn til að koma á fót framleiðsluferli sem var algjörlega án leysiefna.

Silkimatt lakk

Silkimatta lakkið okkar magnar eiginleika viðarins með því að draga fram náttúrulega formgerð hans. Það eykur einnig endingu gólfsins og auðveldar þrif. Jafnframt er lakkið okkar eitt það þynnsta sem völ er á þannig að það hylur ekki náttúrulegan gljáa viðarins.

Sjá silkimöttu gólfin okkar

Matt lakk

Mild áferð matta lakksins okkar gefur viðnum náttúrulegt útlit eins og gólfið sé ómeðhöndlað eða olíuborið. Mjúkt, náttúrulegt yfirborðið er notalegt viðkomu þegar maður er berfættur. Matt lakk er jafnendingargott og silkimatt og eins auðvelt að viðhalda. Matt yfirborð er grófara en silkimatt yfirborð.

Sjá möttu gólfin okkar

Ultra-matt lakk

Viður sem er meðhöndlaður með ultra-matta lakkinu okkar er í útliti og viðkomu eins og ómeðhöndlað, nýsagað timbur en hefur sterkan, mjúkan og ósýnilegan skjöld gegn sliti. Ultra-matt yfirborð er grófara en matt yfirborð.

Sjá ultra-möttu gólfin okkar

Olía

Olía frá Kährs gerir gólfið þitt náttúrulegra og fallegra. Olía dregur fram fíngerða formgerð og æðamynstur viðarins og styrkir náttúrulegan lit hans. Hafið í huga að olíubera skal gólfið um leið og það hefur verið lagt og því síðan viðhaldið reglulega með Kährs Satin Oil.

Sjá olíubornu gólfin okkar

Háglansandi lakk

Háglansandi lakkið gefur gólfinu þínu gljáfægt, skínandi útlit og endurspeglandi yfirborð. Það er spennandi tilbreytni frá hefðbundnari viðargólfum.

Sjá háglansandi gólfin okkar